18.12.1916
Neðri deild: 2. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 157 í B-deild Alþingistíðinda. (240)

2. mál, útflutningsgjald af söltuðu sauðakjöti

Bjarni Jónsson:

Úr því að fyrirspurn mín til nefndarinnar hefir leitt til þess, að getgáta hefir komið fram um það, að bretska stjórnin ætli sjer að nota þessar tunnur, sem sýnishorn handa hernum, þá skal jeg lýsa því yfir, að mjer dettur ekki í hug, að íslenska stjórnin ætli, eða hafi ætlað sjer, að selja Bretastjórn þetta kjöt, sem er skilyrðisbundin bannvara.