04.05.1918
Efri deild: 13. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 475 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

2. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Eins og sjá má á þgskj. 49, hefir samgöngumálanefndin komið fram með brtt.; sem fer fram á, að steypt verði saman í eitt þessum tveim frv., sem bæði hafa sömu fyrirsögn og eru hvorttveggja breytingar á sömu lögum.

Í stað tveggja breytinga í öðru frv. og einnar í hinu komi þá þrjár í sama frv.

Eins og sjá má eru þessar breytingar nefndarinnar engar efnisbreytingar, og geri jeg ráð fyrir, að öllum þyki þetta hentugra.