20.02.1920
Efri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (623)

28. mál, Kjarni og Hamrar undir lögsagnarumdæmi Akureyrar

Halldór Steinsson:

Þar sem mál þetta er öllum deildarmönnum ókunnugt, nema tveimur, finst mjer full ástæða til þess að vísa því til nefndar, og þá helst allsherjarnefndar. Tek jeg undir með hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.), að vanalega muni vera leitað álits sýslunefndar um slík mál.