02.04.1921
Neðri deild: 33. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í B-deild Alþingistíðinda. (299)

9. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg skal ekki tefja háttv. deild með langri ræðu, einkum þar sem engar brtt. liggja fyrir, utan nefndarinnar. En í nál., þótt stutt sje, er gerð grein fyrir meðferð málsins í nefndinni, en hún leggur til, að frv. verði samþykt óbreytt, eins og það kom frá stjórninni. Verði ekki óskað einhverra annara skýringa, mun jeg ekki fjölyrða frekar um þetta, enda er óþolið orðið mikið í deildinni, eins og við er að búast, eftir allan vaðalinn í dag.