05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í D-deild Alþingistíðinda. (3366)

89. mál, rannsókn á höfninni í Súgandafirði

Flm. (Ólafur Proppé):

Jeg á brtt., sem fram hefir komið við aðaltill., um, að í stað „Neðri deild Alþingis“ komi ,,Alþingi“, vegna þess, að till. hefir fjárveitingu í för með sjer. Að öðru leyti þarf hún eigi frekari skýringar.