06.05.1921
Neðri deild: 63. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í D-deild Alþingistíðinda. (3608)

131. mál, skorun á stjórnina að leita umsagnar Alþingis um það hvort hún njóti trausts þess

Jakob Möller:

Jeg vil aðeins undirstrika fyrri orð mín um það, að stjórnin hefir ekki gert annað en það, sem henni var bæði sagt um, hvað og hvernig hún ætti að gera það, og hefir hún meira að segja notið til þess aðstoðar sjerstakra nefnda, og samt ganga málin ekki betur fram en raun er á.