06.04.1922
Neðri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 140 í D-deild Alþingistíðinda. (1842)

75. mál, rannsókn á máli Árna Theódórs Péturssonar

Forsætisráðherra (S. E.):

Jeg vil aðeins geta þess, að mjer virðist þessi maður enga lagalega kröfu eiga til skaðabóta. Því stjórnin er í veitingunni ekki bundin við tillögu skólanefndar. Að öðru leyti hefi jeg ekkert á móti því að athuga málið.