29.03.1922
Sameinað þing: 9. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 928 í B-deild Alþingistíðinda. (38)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. kjörbrjefanefndar (Gunnar Sigurðsson):

Kjörbrjefanefnd hefir rannsakað kjörbrjef og kjörgögn háttv. þm. V.-Sk. (L. H.) og ekkert fundið athugavert við þau. Einnig hefir sýslumaðurinn í Vestur-Skaftafellssýslu sent símskeyti, sem vottar að hlutaðeigandi þingmaður sje löglega kosinn. Leggur nefndin því til, að háttv. Alþingi samþykki kosningu þessa.