31.03.1922
Neðri deild: 37. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (805)
71. mál, kennsla heyrnar og málleysingja
Frsm. (Gunnar Sigurðsson):
Jeg hefi borið þetta undir álit forstöðukonu málleysingjaskólans, og taldi hún ekki þörf á að bæta við kenslukröftum í bráðina. Um húsnæðið má búast við, að það verði að stækka í framtíðinni, en eftir hennar dómi verður þess þó ekki þörf á næstu árum.