02.04.1924
Neðri deild: 40. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í C-deild Alþingistíðinda. (2782)

115. mál, varnir gegn berklaveiki

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg var ekki viðstaddur meðan að umræður fóru fram, og veit því ekki hvort minst hefir verið á eina mikilsverða breytingu, sem þetta frv. fer fram á frá núverandi skipulagi. Þessu frv. er aðeins, ætlað að ná til þeirra, sem hafa smitandi berkla, og vitanlega er það vörnin gegn þeim, sem mestu máli skiftir fyrir heildina.