25.04.1924
Efri deild: 54. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í B-deild Alþingistíðinda. (614)

6. mál, sameining yfirskjalavarðarembættis og landsbókavarðarembættis

Frsm. (Sigurður Eggerz):

Þetta frv. er samskonar og frv., sem felt var á síðasta þingi, og er komið fram sem liður af samsteypufrv. fyrverandi stjórnar. Hv. Nd. hefir samþykt þetta frv. nú, og nefndin leggur til, að frv. nái að verða að lögum.