08.05.1925
Efri deild: 71. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 2696 í B-deild Alþingistíðinda. (1753)

99. mál, innheimta gjalda af erlendum fiskiskipum

Frsm. meiri hl. (Sigurður Eggerz):

Hjeðan af þýðir ekki að lengja mikið umr. um þetta mál.

Jeg vildi aðeins enn taka það fram, að meiri hl. fjhn. hefir ekki farið fram á, að lögreglustjórum landsins yrði veittur nokkur nýr rjettur, heldur aðeins að þeir fái að halda þeim rjetti, sem þeir þegar hafa fengið. Jeg verð því að leggja til, að frv. verði felt, þar sem brtt. meiri hl. hefir ekki verið tekin til greina.