14.05.1925
Efri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3332 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)

34. mál, mannanöfn

Forseti (HSteins):

Jeg vil geta þess, af því að hæstv. forsrh. (JM) er ekki við, að hann tók það fram, síðast er atkv. voru greidd um þetta mál, að hann greiddi því atkv. til 3. umr. Eins og kunnugt er, bendir það til, að sá, er slíkt tekur fram, ætlist ekki til, að frv. það, sem um er að ræða, fari óbreytt út úr deildinni.