19.03.1925
Efri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

4. mál, fjáraukalög 1924

Forsætisráðherra (JM):

Ráðuneytið hefir ákveðið að halda verkinu áfram, með samþykki fjvn. Og af því að vitamálastjóri telur nauðsynlegt, að garðurinn verði fullgerður hið bráðasta, þá mun bráðlega verða farið að undirbúa verkið. En auðvitað verður fjárveiting í þessu skyni tekin upp í fjáraukalög fyrir árið 1925.