11.05.1925
Sameinað þing: 5. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í D-deild Alþingistíðinda. (3188)

131. mál, steinolíuverslunin

Forseti (JóhJóh):

Jeg get ekki orðið við ósk hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) um að vísa tillögu þessari frá, því ef hún verður samþykt, felst í henni sjálfri heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að láta reka steinolíuverslun í frjálsri samkepni frá þeim meiri hluta þingsins, sem samþykkir tillöguna, og þarf því ekki að reka þá verslun eftir einkasölulögunum. Heimildin felst í sjálfri þingsályktuninni.