20.02.1925
Efri deild: 10. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

13. mál, smjörlíki

Atvinnumálaráðherra (MG):

Mjer skildist það á ræðu hv. 1. landsk. (SE), að hann telji mig hafa komið með getsakir í sinn garð, en það er alveg ástæðulaust; jeg sagði ekkert, sem hv. þm. hafði ástæðu til að skilja þannig.