23.03.1925
Neðri deild: 40. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

1. mál, fjárlög 1926

Þórarinn Jónsson:

Jeg stend ekki upp til þess að segja neitt fyrir hönd nefndarinnar, enda er það ekki venja við þessa 1. umr. Jeg vil aðeins þakka hæstv. fjrh. (JÞ) fyrir þá glöggu og góðu skýrslu um fjármál ríkisins, er hann gaf hjer í þessari háttv. deild. Annars ætla jeg ekki að tefja þær mikilsverðu og skemtilegu umræður, sem hjer munu nú fara fram. eftir gamalli venju.