19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1901 í B-deild Alþingistíðinda. (1620)

31. mál, happdrætti fyrir Ísland

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg skal ekki karpa mikið við hæstv. fjrh. Með lögum þeim, sem samþykt voru nú fyrir skemstu hjer á þinginu, var ekki bannað að kaupa erlenda happdrættismiða, heldur aðeins að selja þá. Jeg hygg, að þeim fjölgi, sem kaupa erlenda happdrættismiða: svo er reynsla síðari ára. Jeg hefi ekki trú á henni, þar sem leyfilegt er að kaupa, þótt óheimilt sje að selja.