11.03.1926
Neðri deild: 28. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í C-deild Alþingistíðinda. (2035)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Ólafur Thors:

Jeg hafði búist við því, að hv. flm. mundi bera fram brtt., eins og hann gerði ráð fyrir við 2. umr. Hann hefir nú ekki gert það. Sjálfur mun jeg ekki flytja slíka brtt., aðallega vegna þess, að jeg hefi fengið vitneskju um, að fleiri mundu þá koma á eftir, en engin ná fram að ganga.

Eins og jeg tók fram við 2. umr., mundi jeg hafa greitt atkv. með því, að Hafnarfjörður fengi einn þm., en Gullbringu- og Kjósarsýsla tvo, en jeg mun greiða atkv. móti frv. eins og það liggur fyrir.