14.05.1926
Efri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2427 í B-deild Alþingistíðinda. (3437)

Starfslok deilda

Ágúst Helgason:

Jeg vil leyfa mjer að þakka hæstv. forseta góða og röggsama fundarstjórn og óska honum góðrar heimfarar og farsællar heimkomu. Vænti jeg þess, að jeg tali þar fyrir munn allra hv. deildarmanna.

(Deildarmenn tóku undir orð 6. landsk. þm. (ÁH) með því að standa upp).