12.03.1926
Efri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

12. mál, kynbætur hesta

Einar Árnason:

Jeg þarf ekki að tala meira um brtt. mínar, en sakir þess, að fram hafa komið tilmæli um það, og nokkra hv. þdm. vantar á fund, vil jeg taka aftur brtt. mína á þskj. 129 til 3. umr. Vænti jeg þess, að hv. deild verði þá fullskipuð.