23.03.1926
Neðri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

9. mál, veitingasala, gistihúshald o. fl.

Atvinnumálaráðherra (MG):

Þetta frv. hefir gengið í gegnum hv. Ed. nær því breytingalaust. Allshn. hafði það til meðferðar þar, og legg jeg til, að því verði einnig hjer vísað til þeirrar nefndar. Jeg sje ekki ástæðu til að innleiða umræður að svo komnu.