10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (852)

126. mál, verðtollur

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vil leiða athygli hv. þdm. að því, að nú er þingið búið að afgreiða fjárlög fyrir árið 1927 og þar er gengið út frá 850 þús. kr. tekjum af verðtolli, svo að jeg tel sjálfsagt, að það sama þing, sem afgreiddi fjárlögin með þessum lið, muni einnig samþykkja þetta frv.