13.05.1927
Efri deild: 73. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2088 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

3. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Jónas Kristjánsson:

Jeg vil aðeins taka það fram, að jeg mælti á móti frv. að því leyti, sem mjer þótti það ekki gera ráð fyrir eins háum tolli og jeg teldi rjett að hafa á þessum munaðarvörum. Jeg vil, að tollurinn sje hafður svo hár, að hann dragi verulega úr kaupum á þessum vörum.