26.04.1927
Neðri deild: 59. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í C-deild Alþingistíðinda. (2420)

61. mál, mat á heyi

Jón Sigurðsson:

Jeg vil aðeins geta þess, að jeg get fallist á brtt. þær, sem nefndin hefir gert við frv. þetta, og tel breytingarnar um endurmatið til bóta. Mun jeg því greiða þeim atkvæði mitt.