26.04.1927
Neðri deild: 59. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 643 í C-deild Alþingistíðinda. (2667)

94. mál, sauðfjárbaðanir

Forseti (BSv):

Jeg hefi litla löngun til að tefja framgang þessa máls. Hinsvegar er það ýmsum kappsmál, og eigi gott að það komi til atkv., þegar 7 þm. eru fjarstaddir, þ. á. m. sá, er næst hafði kvatt sjer hljóðs, og sá, er ber fram mestar brtt. En til þess að hv. deild fái eigi kent mig við hlutdrægni eða rangsleitni, mun jeg skjóta því til atkv. hennar, hvort hún vill, að málið komi nú fyrir.