29.03.1927
Neðri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í C-deild Alþingistíðinda. (2690)

97. mál, gin- og klaufaveiki

Flm. (Pjetur Ottesen):

Jeg sje ekki ástæðu til að fara neitt út í þetta mál að svo stöddu, framar því, sem gert er í greinargerðinni, en leyfi mjer aðeins að leggja til, að því verði vísað til 2. umr. og landbn., og vil jeg beina þeim tilmælum til háttv. nefndar, að hún hraði málinu svo sem kostur er.