18.05.1927
Efri deild: 78. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 891 í C-deild Alþingistíðinda. (2844)

8. mál, samskólar Reykjavíkur

Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Jeg vil aðeins taka það fram, að í dag hafa verið haldnir tveir nefndarfundir um þetta mál; ítarlegar skýrslur hafa komið fram frá hlutaðeigandi mönnum, en enginn tími hefir gefist til að vinna úr þeim. Jeg verð þess vegna að greiða atkv. á móti því, að afbrigði verði leyfð um þetta mál.