14.05.1927
Efri deild: 74. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (630)

84. mál, sorphreinsun og salernahreinsun á Akureyri

Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Allshn. hefir haft frumvarp þetta til meðferðar. Það er flutt í hv. Nd. af hv. þm. Ak. (BL) eftir beiðni bæjarstjórnar. Álítur nefndin rjett að samþykkja frv., en telur rjett að gera á því þá breytingu, að gjaldið sje aðeins lagt á húsin sjálf, en ekki á íbúa þeirra.