29.03.1927
Neðri deild: 41. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 677 í C-deild Alþingistíðinda. (983)

97. mál, gin- og klaufaveiki

Jónas Jónsson:

Hæstv. forsrh. neitar að vinna helgidagavinnu bæði fyrir sig og aðra, og af orðum hans má ráða það, að hann vilji enga hlutdeild í því eiga, að bankastjórarnir komi til viðtals við nefndina. Það er því ætlun hans, að sama launung eigi að vera yfir málinu hjer eftir sem hingað til.