30.03.1928
Efri deild: 61. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (1008)

2. mál, fjáraukalög 1926

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Fyrir hönd nefndarinnar er fátt að segja umfram það, sem í nál. segir. Nefndin hefir athugað frv. og borið það saman við landsreikningana og athugasemdir endurskoðenda, en ekkert fundið, sem gæfi tilefni til athugasemda. Eins og nál. ber með sjer, leggur nefndin til, að frv. verði samþ.