16.04.1928
Neðri deild: 73. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í D-deild Alþingistíðinda. (2227)

160. mál, gin- og klaufaveiki

Pjetur Ottesen:

Jeg vil mælast til þess, að hæstv. forseti taki fyrir á þessum fundi till. á þskj. 785, sem útbýtt hefir verið í deildinni, svo að hægt sje að ákveða, hvernig hún skuli rædd, og jafnframt, ef svo færi, sem jeg veit að verða muni, að afbrigði verða leyfð, að hún verði þá tekin á dagskrá á morgun, til þess að hægt sje að afgreiða hana.