14.03.1928
Efri deild: 47. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (732)
8. mál, ríkisrekstur á útvarpi
Jón Þorláksson:
Út af orðum hæstv. dómsmrh. (JJ) vil jeg, að það komi fram, að sú skoðun er til, að óheppilegt sje, að langt hlje þyrfti að verða á útvarpsstarfseminni, þó ekki væri vegna annars en veðurfrjettanna. Sú stöð, sem hjer er nú, dregur að vísu ekki um land alt. En hún nær þangað, sem mest eru stundaðar fiskiveiðar að vetrarlagi. Og það hefir mikla þýðingu, að veiðiskipin geti haldið áfram að fá þessar frjettir óslitið.