30.01.1930
Neðri deild: 9. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í C-deild Alþingistíðinda. (1050)

29. mál, rekstarlánafélög fyrir bátaútveg og smáiðju

Sveinn Ólafsson:

Út af niðurlaginu á ræðu hv. flm. vil ég taka það fram, að þetta frv. er aðeins lítið breytt útgáfa af frv. um sveitabanka. Mér finnst þetta mál fyrst og fremst fjárhagsmál, og eiga því betur heima í fjhn. en í sjútvn., enda legg ég til að því verði vísað til fjhn.