12.04.1930
Neðri deild: 78. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 2130 í B-deild Alþingistíðinda. (2848)

34. mál, landhelgisgæsla

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Minni hl. sjútvn. hefir óskað þess, að ég mælti með því, að málið yrði tekið af dagskrá að þessu sinni, af því að hann hefir ekki fengið ráðrúm til þess að skila áliti enn. Ég get fyrir mitt leyti mælt með þessari ósk, ef málið getur komið til umr. á mánudag, eða í síðasta lagi á þriðjudag.