24.01.1930
Neðri deild: 4. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

1. mál, fjárlög 1931

Magnús Jónsson:

Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir að hafa gefið mér greið svör, að svo miklu leyti, sem hann getur, en ég verð að segja, að svar hans gerir þetta að enn meiri ráðgátu fyrir mér en áður. Ef Mosfellsheiðarvegurinn er ekki með, þá verður þessi upphæð alveg óskiljanleg. Hvað getur þetta þá verið? Ég veit ekki til, að hátíðarnefndin hafi gert neinar ákvarðanir, sem komast nokkuð nálægt þessu að kostnaði. En mér fer að detta í hug, hvort þetta geti verið þær framkvæmdir, sem unnið hefir verið að á sjálfum Þingvöllum af öðrum aðiljum. Ég leyfi mér að skjóta því til hv. 1. þm. Skagf. hvort svo muni vera. (MG: Hæstv. dómsmrh. mun geta svarað því).