17.03.1932
Neðri deild: 31. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í C-deild Alþingistíðinda. (2902)

87. mál, innflutningur á kartöflum o. fl.

Forseti (JörB):

Ég vil aðeins benda hv. frsm. á það, að það standa tveir á mælendaskrá á undan honum, og að ég gaf honum orðið, var aðeins vegna þess, að ég bjóst við, að hann mundi geta fallizt á, eins og málinu er nú komið, að réttara væri að fresta frekari umr. þangað til hinar skrifl. brtt. lægju hér prentaðar fyrir.