02.04.1932
Efri deild: 41. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1256 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

17. mál, bygging fyrir Háskóla Íslands

Dómsmrh. (Jónas Jónsson) [óyfirl]:

ég er samþykkur hv. 1. landsk, um það, að ef einhverjum þykir það betra að orða þessa heimild svona, þá er enginn skaði skeður með því, því það kemur aðeins enn ljósara fram, sem alltaf hefir verið hugsað með þessu ákvæði, og bæði hv. 1. landsk., ég og aðrir hv. dm. hafa samþ. það með heim skilningi, en þetta orðalag er aðeins ákveðnara. Ég sé því ekki ástæðu til annars en að samþ. brtt., ef einhverjum þykir ákvæðið ljósara fyrir það.