27.04.1933
Efri deild: 57. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

107. mál, happdrætti fyrir Ísland

Forseti (GÓ):

Það hefir verið borin fram ósk um, að frv. verði tekið út af dagskrá. Og þar sem hv. þm. greinir mjög á um framgang þess, enda þótt sumir telji, að það megi slarka eins og það er, þá tek ég það samt út, enda ætti að verða nógur tími til að gera frv. að 1., þótt gefinn sé frestur til að athuga það nánar.