04.05.1933
Neðri deild: 64. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (858)
25. mál, stjórn vitamála og um vitabyggingar
Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):
Ég hlýt að fara eftir því, sem vitamálastjóri hefir sagt um þetta, en hann telur kostnaðinn verða talsvert mikinn. Bæjarsjóðurinn á heldur ekki að geta heimtað það af ríkissjóði, að hann taki við þeim bagga, sem bæjarstjórn hefir bundið sjálfri sér með því að byggja vita eða annað.