29.11.1933
Neðri deild: 22. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (596)

10. mál, Kreppulánasjóður

Tryggvi Þórhallsson:

Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forseta, að hann taki málið af dagskrá, til þess að hægt sé að athuga, hvort ekki sé hægt að hafa ótvíræðara orðalag á þessari till., sem hér er verið að ræða um.

Ég skal geta þess, að ég hefi talað við meiri hl. landbn., sem er fús til að taka þetta til athugunar.