11.12.1934
Sameinað þing: 21. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2838 í B-deild Alþingistíðinda. (157)
Kosningar
Jónas Jónsson:
Eins og hv. 10.landsk. hlýtur að vera ljóst, þá verður þetta að vera mál á milli hans og Sjálfstfl. Hv. þm. getur ekki búizt við, að hinir flokkarnir falli frá því, að hafa sína fulltrúa í nefndinni; enda þykist ég vita, að hann eigi ekki við það, heldur að Sjálfstfl. láni Bændafl. annað af sínum sætum í n. Við því er náttúrlega ekkert að segja frá hálfu hinna flokkanna. Þetta getur því aðeins orðið á þann hátt, að Sjálfstfl. gefi eftir annað sæti sitt eða skipti atkv. sínum til stuðnings við lista Bændafl. Ég vona, að hv. þm. sjái, að þetta getur ekki náð til annara flokka. Enda skilst mér, að undanfarna daga hafi eitthvað verið unnið að þessum kosningaundirbúningi á milli hinna flokkanna, og athugað, hvaða menn ættu að koma í n. fyrir Sjálfstfl. og Bændafl. Nú mun það vera afgert mál, og er þá væntanlega ekkert því til fyrirstöðu, að kosning geti farið fram.