09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Þorsteinn Briem:

Ég saknaði þess í grg. frv., að því fylgir ekki óbreytt frv. það, sem afurðasölunefnd bjó til og sendi ráðuneytinu. Mér skilst, að hæstv. forsrh. muni hafa gert breyt. á því. Mér þætti æskilegt að fá upplýsingar um, í hverju þær breyt. eru fólgnar. Ég vil beina þeirri ósk til hæstv. forsrh., að hann láti n. þetta frv. í té.