24.10.1934
Neðri deild: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)
14. mál, tolllög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þetta frv. er komið frá Ed. Það fer fram á hækkun á tóbakstolli og tolli á vörum, sem framleiddar eru innanlands, svo sem brjóstsykri, ýmiskonar sætindum og suðusúkkulaði. - Ég vil leyfa mér að leggja til, að þessu frv. verði vísað til fjhn. að þessari umr. lokinni.