26.10.1934
Neðri deild: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)

65. mál, verslunarlóð Ísafjarðar

Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Allshn. leggur til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt. Það er flutt af hv. þm. Ísaf., eftir ósk bæjarstj. á Ísafirði. Það verður að teljast sanngjarnt, að bæjarlóðin sé ekki stærri en bæjarstj. óskar og telur rétt. Ég vil svo leyfa mér f. h. n. að óska þess, að frv. verði samþ.