05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í C-deild Alþingistíðinda. (4771)

40. mál, ríkisgjaldanefnd

Magnús Jónsson:

Ég vil biðja hæstv. forseta að taka bráðlega á dagskrá frv. um ríkisgjaldanefnd. Þetta frv. var með þeim fyrstu, sem flutt voru á þinginu, og minni hl. fjhn. hefir þegar skilað áliti um það fyrir þrem vikum. Ég vil biðja hæstv. forseta að ganga eftir áliti meiri hl. n. og taka svo málið á dagskrá, því að þetta er stórmál, sem sjálfsagt er, að fái að koma til umr.