11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (5046)

173. mál, vegarstæði um Lágheiði

Magnús Jónsson:

Ég ætla ekki að amast við þessari þáltill., en langar til að beina einni fyrirspurn til hv. flm. Mér hefir verið sagt af kunnugum manni, að vegamálastj. sé þegar búinn að láta rannsaka þetta vegarstæði og að það liggi fyrir skoðunar- og álitsgerð um það. Ef svo skyldi vera, þá er náttúrlega ekki mikil ástæða til þess að samþ. þessa þáltill. — Það var aðeins þetta, sem ég vildi spyrja um.