11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (938)
17. mál, skemmtanaskattur og þjóðleikhús
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í frv. því, er hér liggur fyrir til umr., er farið fram á að framlengdar séu álögur á skemmtanaskatti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þetta mál. Vænti ég þess, að frv. verði vísað til fjhn.