14.03.1935
Efri deild: 25. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (1097)

35. mál, fasteignaveðslán landbúnaðarins

Pétur Magnússon:

Landbn. hélt í gær fund til að ræða um þetta mál, og kom nm. saman um að bera fram nokkrar brtt. við frv. var mér falið að gera uppkast að þessum brtt., og gerði ég það seinni partinn í gær. Ég hefi ekki síðan getað náð í samnm. mína, og form. landbn. er nú veikur, svo að þessar brtt. hafa ekki getað farið í prentsmiðjuna. Vil ég því biðja hæstv. forseta að taka málið af dagskrá enn einu sinni, og að taka það þá helzt ekki á dagskrá fyrr en á laugardag.