18.10.1935
Neðri deild: 51. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)

119. mál, kjötmat o.fl.

Magnús Torfason:

Ég gat þess hér í gær, að mér þættu nokkrir ankannar á þessu frumv., en þá var hvorki hæstv. landbrh. né hv. form. landbn. til staðar í d. Nú sé ég, að hv. form. landbn. rís ekki á fætur til þess að tala um þessar till. mínar, og gæti ég trúað, að ekki hefði verið kallaður saman nefndarfundur til að athuga þær. Nú vildi ég óska þess, að hann lýsti því yfir, hvort hv. nm. hefir verið gert aðvart um þær.